Tómatsúpa

Þessi súpa er svo frábær því hún er ótrúlega bragðgóð, einföld og fljót í eldun, geymist vel og fer vel með budduna.

30 mín

4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

  • 1 teningur grænmetiskraftur
  • 400 ml Kókosmjólk
  • 2 dós Hakkaðir tómatar
  • 4 Hvítlauksrif
  • 3 dl Pastaskrúfur
  • 700 ml Vatn
  • 0.5 msk Olía
  • 1 stk Salt
  • 1 stk Pipar

    Leiðbeiningar

    1. Hakkið tómatana úr dós með töfrasprota, matvinnsluvél eða blender

    2. Setjið olíu og hvítlauk í pott og leyfið að malla þar til hitinn er kominn upp en passið að laukurinn brenni ekki

    3. Þegar hitinn er kominn upp bætið þá við hökkuðum tómötum, vatni, grænmetis kraft og kókosmjólk

    4. Setjið salt og pipar eftir smekk og leyfið að malla í 12 mínútur

    5. Setjið pastaskrúfur út í og leyfið að malla í 8 - 10 mínútur í viðbót

    6. Súpan má að sjálfsögðu malla lengur og verður bara betri með tímanum, en eftir þennan tíma er hún orðin fullelduð og má því bera hana fram