Sturlaðir snickersbitar

Mælum með því að tvöfalda uppskriftina.

1 klst

2
skammtar

Uppskrift

Hráefni

Botn

  • 1 dl Salthnetur
  • 1 msk Hnetusmjör
  • 1 msk Kakó
  • 1 msk Síróp
  • 3 msk Vatn

Fylling

  • 1 dl Salthnetur
  • 10 stk Steinlausar döðlur
  • 1 msk Hnetusmjör

Efsta lag

  • 100 g 70% súkkulaði

    Leiðbeiningar

    1. Setjið hneturnar fyrir botninn í matvinnsluvél og malið þar til fínt malaðar.

    2. Bætið hnetunum í skál ásamt hnetusmjöri, kakó, hlynsírópi og vatni.

    3. Setjið smjörpappír í lítið form og látið deigið þar í. Dreifið úr og setjið í frysti.

    4. Getið á meðan fyllinguna. Setjið döðlurnar í heitt vatn og látið mýkjast.

    5. Malið hneturnar gróflega. Bætið döðlum og hnetusmjöri saman við og maukið saman í matvinnsluvél. Setjið yfir botninn.

    6. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og setjið yfir fyllinguna.

    7. Látið í fyrsti í um 30 mínútur. Skerið bitana og geymið í frysti.