Marokkóskur kjúklingaréttur með sætum kartöflum

Algjörlega frábær kjúklingaréttur sem er uppáhald allra sem smakka hann!

1 klst

4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

Kjúklingur

  • 700 g Kjúklingabringur
  • 0.5 tsk Salt
  • 0.5 tsk Pipar
  • 1 Sítrónur
  • 1.2 kjúklingakraftur og 1.2 dl vatn
  • 2 Sætar kartöflur
  • 1 Laukur, skorinn gróflega
  • 6 Hvítlauksrif
  • 12 Sveskjur, skornar í tvennt
  • 1 Epli, skorið niður
  • 1 msk Ólífuolía

Kryddblanda

  • 2 msk Ólífuolía
  • 1.5 tsk Kóríander
  • 1 tsk Cumin
  • 1 tsk Paprikukrydd
  • 2 rifinn sítrónubörkur
  • 0.75 tsk Cayenne pipar
  • 0.5 tsk Kanill
  • 1.5 tsk Salt

    Leiðbeiningar

    1. Látið sætar kartöflur, lauk, epli, sveskjur og hvítlauk í ofnfast mót. Hellið ólífuolíu yfir allt, saltið og piprið og blandið öllu vel saman.

    2. Blandið öllum hráefnum fyrir kryddblönduna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í kæli í smá stund.

    3. Leggið kjúklinginn hjá grænmetinu og hellið kjúklingasoðinu yfir.

    4. Eldið í 160°c heitum ofni í um 40-50 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og grænmetið farið að mýkjast. Ausið kjúklingasoðinu yfir kjúklinginn af og til á eldunartímanum.