Litríkt pastasalat með karrýkjúklingi og kaldri dressingu
Þetta salat er ofureinfalt og fljótlegt. Virkilega bragðgott og fullkomið sem hádegisverður eða léttur kvöldverður.
20 mín
4
skammtar
5.011 kr.
Setja í körfu
Hráefni
5.011 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
Innihaldslýsing
- 250 g Pastaskrúfur
- 600 g Kjúklingabringur
- 0.5 krukka karrí þykkni
- 1 Rauð paprika í bitum
- 25 Græn vínber, skorin í tvennt
- 1 dl Ristaðar kasjúhnetur
- 1 grænt epli, afhýtt og skorið í bita
- 1 dl Bláber
Mangó chutney dressing
- 2 msk Mango chutney
- 200 g Oatly hafra sýrður rjómi
Byrjið á því að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum.
Skerið kjúklinginn í bita. Hitið 1 tsk af kókosolíu á pönnu og brúnið kjúklinginn. Bætið 1/2 krukku af Red curry paste út á og steikið áfram í nokkrar mínútur. Slökkvið undir og kælið að mestu.
Skerið grænmeti og ber, ristið hnetur.
Hrærið saman innihaldinu í sósuna og setijð til hliðar.
Setjið salatið saman. Í stóra skál setti ég pastað fyrst, svo kjúkling, því næst papriku og ber og toppað með hnetunum. Sósuna má hafa til hliðar og hver og einn ræður magni.
Leiðbeiningar
Mango chutney dressing
Setjið hafrajógúrt í skál og hrærið þar til kekkjalaust. Bætið við mango chutney og hrærið saman. Geymið í kæli.