Kjúklingaréttur frá Marokkó

Algjörlega frábær kjúklingaréttur sem er uppáhald fjölskyldunnar!

30 mín

4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

  • 700 g Kjúklingabringur
  • 2 Rauðlaukar
  • 2 tsk Kanill
  • 1 msk Kjúklingakraftur
  • 0.75 dl Rúsínur
  • Börkur af 1 sítrónu, fínrifinn
  • 30 g Ristaðar furuhnetur
  • Steinselja
  • 4.5 dl Soðið vatn
  • Safi af 0.5 sítrónu
  • 3 msk Hveiti
  • 50 ml Ólífuolía
  • 1 stk Salt
  • 1 stk Pipar

    Leiðbeiningar

    1. Skerið kjúklinginn í litla munnbita.

    2. Setjið hveiti, salt og pipar í skál og veltið kjúklingabitunum uppúr blöndunni.

    3. Hitið 2 msk af olíu á pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er orðinn gylltur að lit. Takið af pönnunni og geymið.

    4. Skerið rauðlauk í þunnar sneiðar. Hitið olíu á pönnu og steikið rauðlaukinn við lágan hita í um 10 mínútur.

    5. Bætið því næst kanil, kjúklingabitum, rúsínum, sítrónuberki og kjúklingasoði. Látið malla í 5 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað örlítið.

    6. Bætið við meira vatni ef þörf er á.

    7. Setjið að lokum sítrónusafa, saxað kóríander eða steinselju og ristaðar furuhnetur saman við.

    8. Berið fram með naan, hrísgrjónum og góðri jógúrtsósu.