Kalkúnabollur

Kalkúnabollur með rifnum osti, kotasælu og spergilkáli eru komnar á uppáhaldslistann hjá manninum mínum. Næringarríkar, stútfullar af próteini og einstaklega bragðgóðar!

45 mín

4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

  • 600 g Kalkúnahakk
  • 150 g Spergilkál
  • 170 g Brauðsneiðar, 2 stykki
  • 3 stk Eggjahvítur
  • 100 g Rifinn ostur
  • 100 g Kotasæla

    Leiðbeiningar

    Leiðbeiningar

    • Kalkúnahakk er hægt að kaupa frosið allt árið um kring, en þetta er ódýr matur en bæði góður og næringarríkur. ATH: Þessi uppskrift inniheldur ekki meðlæti en tilvalið er að hafa kartöflur, brúna sósu og salat með þessum rétt.

    • Byrjið á að gufusjóða spergilkál í 10-15 mín og látið það kólna aðeins en það má líka fara beint í skálina heitt. Ekki sleppa spergilkálinu í uppskriftinni, ég lofa það finnst ekkert bragð af því, það verður ljóst og þegar sósa er komin á bollurnar sjá börnin þín það heldur ekki. Það má mauka það í matvinnsluvél eða skera það niður mjög fínt.

    • Ristið tvær brauðsneiðar frekar mikið, 2-3 sinnum og myljið þær í blandara svo þær verði að brauðmylsnu.

    • Því næst er öllu hrært saman í hrærivél (eða höndunum) og litlar bollur mótaðar.

    • Það má t.d. nota ½ dl mál eða annað álíka til að móta bollurnar og hafa þær jafn stórar, annars skiptir stærðin ekki öllu.

    • Bollurnar eru settar á bökunarplötu og hitaðar við 190 gráður í 25 mínútur. Með þessu er gott að bera fram kartöflur, brúna sósu og ferskt salat. Það má t.d. gera brúna sósu úr pakka og bragðbæta hana með salti og pipar og smá kjötkrafti í stað þess að gera sósu frá grunni.