Jólaís með Toblerone súkkulaðisósu
Það er svooooo einfalt að útbúa ljúffengan heimatilbúinn ís og mér finnst heit sósa algjörlega toppa slíka dásemd.
4 klst 20 mín
6
skammtar
2.755 kr.
Setja í körfu
Hráefni
2.755 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 4 stk Egg
- 50 g Púðursykur
- 30 g Sykur
- 2 tsk Vanillusykur
- 450 ml Rjómi
- 6 stk Kókosbollur, skornar í tvennt
- 300 g Toblerone
- 4 egg (aðskilin)
- 50 g púðursykur
- 30 g sykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 350 ml þeyttur jólarjómi frá Gott í matinn
- 6 litlar kókosbollur (skornar í tvennt)
- 100 g saxað Toblerone
- Þeytið eggjarauður og sykur þar til létt og ljóst og bætið vanillusykri saman við í lokin.
- Vefjið þeyttum rjóma saman við með sleif og bætið Toblerone saman við.
- Að lokum má stífþeyta eggjahvíturnar og vefja þeim varlega saman við rjómablönduna og setja kókosbollurnar saman við alveg í lokin.
- Hellið í ílangt kökuform sem búið er að plasta að innan með plastfilmu og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
- Takið ísinn úr forminu þegar það á að bera hann fram og skreytið með kókosbollum, jarðarberjum, söxuðu Toblerone og Tobleronesósu.
- 200 g Toblerone
- 100 ml rjómi
- Bræðið Toblerone og rjóma saman í potti þar til súkkulaðið er bráðið.
- Leyfið sósunni aðeins að þykkna og hitanum að rjúka úr og berið fram með ísnum.
Leiðbeiningar
Jólaís uppskrift
*Innihald: *
*Aðferð: *
Súkkulaðisósa uppskrift