Icespike Deluxe hálkubroddar
4.990 kr.

ICESPIKE - Hálkuvörn Vandaðir skrúfugaddar undir hlaupaskó, vinnuskó og aðra skó sem nota á í hálku. Ekki láta hálku stoppa þig, þú getur haldið áfram að hlupa eða ganga á Icespike. Endast yfir 800 km, mikið lengur en flest allar aðrar hálkuvarnir. Frábærir undir vöðlur og aðra vinnuskó. Skemma ekki skó og ekkert mál að skrúfa úr. Icespike eru hágæða hálkuskrúfur úr hertu stáli (50-52 rockwell) sem skrúfað er í nánast hvaða skó sem er. Hægt að skrúfa úr án þess að eyðileggja skóna. Þyngja skóna lítið sem ekkert og breyta ekki jafnvægispunkti svo að skórnir haldi eiginleikum sínum sem allra best. Trufla lítið sem ekkert þegar hlaupið er á auðu malbiki og rennur ekki til. Deluxe pakkinn kemur með skrúfjárni og 32 göddum. Einnig er hægt að nota borvél til að festa gaddana. Mælt er með að nota 10-12 skrúfur í hvorn skó fyrir hlaup og 8-10 fyrir göngu. Skrúfið í gúmmi en ekki í frauðefni miðsólans því gúmmísólinn heldur betur í skrúfuna. Forðastu að skrúfa í þunnbotna skó því þá er hætta á að þú finnir fyrir skrúfunum.
Umsagnir
Engar umsagnir
Lesa fleiri umsagnir