Kjúklingaréttur með krömdum ólífum, steinselju og hvítlauk

Uppskriftina að þessum kjúklingarétti rakst ég á af vef NYT og hann kallaði á mig enda með eindæmum fallegur og auðveldur í gerð. Þarna hefur enn einn stórgóði kjuklingarétturinn bæst í safnið okkar góða. Njótið vel!

40 mín

3
skammtar

Uppskrift

Hráefni

Hráefni

  • 700 g Kjúklingalæri
  • 1-2 tsk turmeric
  • 5 msk Ólífuolía
  • Salt eftir þörfum
  • Pipar eftir þörfum
  • 60 ml Hvítvínsedik
  • 1 dós Grænar ólífur, steinlausar
  • 1/2 búnt fersk steinselja
  • 2 hvítlauksrif

    Leiðbeiningar

    1. Setjið lærin í ofnfast mót og kryddið með turmeric, salti og pipar og dreypið olíu yfir.

    2. Hellið síðan ediki yfir kjúklingalærin og látið inn í 200°c heitan ofn í um 30 mínútur eða þar til þau eru gyllt á lit og elduð í gegn.

    3. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum kremjið ólífurnar lítillega, pressið hvítlaukinn og saxið steinseljuna. Blandið öllu saman í skál ásamt hvítvíni (eða sítrónusafa) og kryddið með salti og pipar.

    4. Takið kjúklinginn úr ofninum og setjið á disk. Látið ólífublönduna í ofnfasta mótið sem kjúklingurinn var á og blandið vökvanum sem kom af kjúklingnum saman við ólífumaukið. Hellið yfir kjúklinginn og berið strax fram.