Kjúklingabringur fylltar með mexíkóosti og öðru gúmmelaði

Þessar kjúklingabringur eru fylltar með geggjaðri fyllingu sem samanstendur af mexíkóosti og öðru gúmmelaði!

1 klst

4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

  • 700 g Kjúklingabringur
  • 1 pakki Beikon
  • 250 g Sveppir, smátt saxaður
  • 1 Rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 Rauð paprika, smátt söxuð
  • 1 Mexíkóostur, skorinn í litla bita
  • 4 Sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
  • 250 ml Rjómi
  • 1 msk Kjúklingakraftur
  • 1 stk Salt
  • 1 stk Pipar

    Leiðbeiningar

    1. Takið 8 stk beikonsneiðar frá og geymið.

    2. Saxið 6-8 sneiðar af beikoni smátt og steikið á pönnu. Þegar það er orðið stökk bætið papriku, sveppum og lauk saman við og steikið. Þegar laukurinn er farinn að mýkjast bætið sólþurrkuðum tómötum og osti saman við. Steikið þar til osturinn er farinn að bráðna.

    3. Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið hluta af fyllingunni þar í. Lokið og vefjið 2 beikonsneiðum utanum hverja bringu. Setjið í eldfast mót og í 180°c heitan ofn í 40 mínútur eða þar til eldaðar í gegn.

    4. Setjið rjóma og kjúklingakrafti saman við restina af fyllingunni. Hitið við vægan hita en látið ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar.

    5. Takið bringurnar úr ofninum hellið rjómablöndunni í fatið.

    6. Berið fram með einföldu salati og hrísgrjónum.