Neutrogena Hydro Boost næturmaski 50 ml
Næturmaski sem vinnur yfir nóttina að því að endurnýja húðina og fylla hana af raka.
Overnight Mask er blanda af næturkremi og maska, sem vinnur að því yfir nóttina að endurnýja húðina og fylla hana af raka. Með reglulegri notkun vinnur maskinn á móti ofþornun og yfirborðsþurrk í húðinni
Með sérstakri „memory gel“ tækni jafnar maskinn sig sjálfur út á húðinni og umlykur húðina þunnri filmu sem máir út þreytumerki og gefur kröftugan raka
Húðin verður mun frísklegri og fylltari um morguninn
Maskinn inniheldur náttúrulega rakaefnið hýalúrónsýru, sem virkar eins og svampur og getur bundið þúsundfalda þyngd sína í vatni djúpt í húðinni. Formúlan býr svo til einskonar vatnstank undri húðlaginu sem sleppir rakanum hægt og rólega, sem tryggir það að húðin fái nægan raka allann daginn
Formúlan inniheldur nú einnig Trehalose, sem er náttúrulegt plöntu efni sem virkar sem raka-og andoxunarefni sem hefur verndandi áhrif á húðina og náttúrulegar rakavarnir húðarinnar. Trehalose getur einnig stuðlað að aukinni kollagen myndun í húðinni þar sem það hefur verndandi áhrif á frumur sem framleiða kollagen
Ásamt glycerin og ólívuextract styrkir maskinn rakavarnir húðarinnar svo að húðin heldur rakanum mun lengur og helst rakafyllt allann daginn
Maskinn er olíulaus
Notkunarleiðbeiningar: Berið á hreina húð á andliti og hálsi á hverju kvöldi. Má einnig nota sem maska þegar húðin þarfnast extra næringar.
Hydro Boost línan frá Neutrogena er einstaklega rakagefandi lína sem bætir rakastig húðarinnar og hjálpar henni að viðhalda því.
Allar vörur í Hydro Boost línunni innihalda náttúurlega rakaefnið hýalúrónsýru.
Innblásturinn af línunni kemur úr kóreskum húðvörum, en þær hafa lengi verið þekktar fyrir að vera fyrsta flokks.
Andlitskrem línunnar eru nú með nýrri og endurbættri formúlu sem inniheldur einnig plöntuefnið Trehalose.