Hættuspil

Hættuspil er byltingarkennd nýjung í forvörnum á Íslandi. Þróun spilsins var upprunalega styrkt af Reykjavíkurborg og Rauða Kross Íslands og er unnið í samvinnu við og undir leiðsögn forvarnardeildar SÁÁ. Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur, einn virtasti fagaðili landsins á svið forvarnarmála, hefur haft yfirumsjón með forvarnarþáttum spilsins.
Hugmyndin að baki Hættuspili er í fyrsta lagi sú að nálgast ungt fólk á þeirra eigin forsendum með spili sem er skemmtilegt og fjörug, en innhaldi jafnframt mjög skýr skilaboð varðandi skaðsemi fíkniefna. Með því að koma boðskapnum í gegnum spilakerfið sjálft (á mjög skemmtilegan hátt) í stað þess að vera með beinan áróður eða boð og bönn eykur það líkurnar að unglingarnir sem spila spilið verði móttækilegri fyrir boðskapnum. Í öðru lagi er fjölskylduspil frábær umræðuvettvangur þar sem öll fjölskyldan getur komið saman og rætt þau málefni sem koma fyrir í spilinu sem undir venjulegum kringumstæðum kynni að vera erfitt að koma orðum að.
Inniheldur:
- Leikborð
- 2 tengingar
- 6 leikpeð
- 69 heilasellur
- 48 stigaskífur
- 6 stór persónuspjöld
- 45 atvikaspjöld
- 44 örlagaspjöld
- 6 áhugamálaspjöld
- 6 Aur kort
- 6 bankabækur
- 16 tryggingar
- 18 vímuspjöld
- 60 hlutaspjöld
- 70 peningaseðlar
- 36 Gangur lífsins spjöld