
Akureyri haust púsl – 1000 bitar
- Flott 1000 bita púsl með fallegri mynd frá Akureyrarbæ þar sem haustlitirnir skarta sínu fegursta
- Akureyri er afskaplega aðlaðandi bær sem stendur við botn Eyjafjarðar við Pollinn en það kallast sjórinn milli Oddeyrar og ósa Eyjafjarðarár. Á svæðið settist fyrst landnámsmaðurinn Helgi magri og Þórunn hyrna á níundu öld
- Á 17. öld reistu danskir kaupmenn búðir sínar á Akureyri en áhrif Dana á bæinn voru mikil og gerðu þeir hann að einum helsta verslunarstað landsins. Því hefur Akureyri oft verið kölluð danski bærinn og sagt er að langt fram eftir 20. öld hafi fólk talað þar dönsku á sunnudögum. Árið 1862 hlaut bærinn kaupstaðaréttindi
- Bærinn skartar mörgum skemmtilegum kennileitum eins og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, Nonnahús, Lystigarðurinn, Kjarnaskógur, Gamli spítalinn og Akureyrarkirkja
Innihald:
- 1000 bita púsl í ferköntuðum kassa
- Stærð kassa: 36,5 × 27 × 6 cm
- Aldur: 12+
- Púsluð stærð: 48,5 × 68
- Myndefni : Byggingar , Landslag
- Fjöldi púsla : 1000
Umsagnir
(1)
Lesa fleiri umsagnir